Pæjumót TM

“TUTTUGASTA PÆJUMÓTIД

6.-8. ágúst 2010.

Pæjumót TM er fyrir stúlkur í 7.-6.-5. og 4. flokki. Spilaður er minni bolti í öllum flokkum. Félög frá fámennum bæjarfélögum mega skrá B eða C-lið til keppni, þjálfurum er treyst að meta lið sín á sanngjarnan hátt.

Leikir hefjast snemma að  morgni föstudagsins 6. ágúst og mótinu lýkur um miðjan sunnudag 8. ágúst.

Boðið er uppá gistingu í ýmsum húsum bæjarins og þurfa keppendur að koma með dýnur og svefnpoka með sér. Gert er ráð fyrir að einungis keppendur/ einn þjálfari og einn fararstjóri gisti með hverju liði.

Landskunnir skemmtikraftar á borð við Ingó, Jógvan og jafnvel Jóhanna Guðrún munu skemmta. Stærsta úti-bingó landsins verður haldið og sérstök móttaka verður fyrir þjálfara og fararstjóra. Landsliðskonur verða á svæðinu og margt fleira spennandi.