Pistill frá formanni KS á fotbolti.net

02.09 , 2010 | robbi

Róbert Haraldsson, formaður og þjálfari hjá Knattspyrnufélagi Siglufjarðar sendi Fótbolta.net eftirfarandi pistil. Lesendur geta sent pistla á Fótbolta.net á netfangið fotbolti@fotbolti.net. Æskilegt er að fullt nafn og mynd fylgi með. Sem formaður og þjálfari hjá knattspyrnufélagi Siglufjarðar, tel ég mig knúinn að senda frá mér örlítinn pistil um vinnubrögð KSÍ og þann mismun sem gerður [...]

3 fl. KS/Tindstóll/Hvöt í úrslit Íslandsmótins

3 fl. KS/Tindstóll/Hvöt í úrslit Íslandsmótins

28.08 , 2010 | gulli

Sameiginlegt lið KS/Tindstóll/Hvöt í 3.fl. karla unnu sér rétt í úrslitum Íslandsmótins í gær. Drengirnir sigruðu Fjarðabyggð 3-1 í hörkuleik á Blönduósi. Okkar menn skoruðu fyrsta markið eftir aðeins 20 sek. en þeir léku gegn sterkum vindi í fyrri hálfleik. Fjarðarbyggð jafnaði svo metin um miðjan hálfleikinn og jafnt var í hálfleik. Nú var að [...]

7. og 6. flokkur karla fara ekki á Húsavík

26.08 , 2010 | robbi

Búið er að aflýsa ferðinni með yngsti karla flokka félagasins til Húsavík. Mótið átti að vera s.l. helgi en var frestað vegna veðurs. KS-strákar sleppa því að fara þetta árið á mótið á Húsavík. Áfram KS/Leiftur.

4. flokkur kvenna í úrslit eftir stórsigur

25.08 , 2010 | robbi

4. flokkur kvenna gerði sér lítið fyrir og unnu stórsigur 7-2 á efsta liðinu Völsung í síðasta leik í riðlakeppni sumarsins. Þessi sigur þýðir að liðið hefur unnið sér rétt til að spila í úrslitum um Íslandmeistaratitilinn.  Verið er að vinna að því að fá úrslitin hingað á Siglufjörð, en þau fara fram helgina 2.-4. [...]

3.flokkur kvenna hársbreidd frá gulli…

22.08 , 2010 | robbi

3. flokkur kvenna lék í úrslitum Íslandsmótsins í 7 manna bolta á Seltjarnarnesi í dag (sunnudag). Stúlkurnar byrjuðu á að spila við Sindra frá Hornafirði og töpuðu illa 1-5, greinilegt að Menningarnóttin fór illa í okkar stúlkur. Næsti leikur var við Keflavík og þann leik unnu okkar stúlkur örugglega 6-1. Síðasti leikur dagsins var við [...]

Dómarinn rændi m.fl. tveimur stigum

21.08 , 2010 | robbi

M.flokkur karla spilar við Reyni Sandgerði í dag (laugardag). Háfaða rok var í Sandgerði, mikill hliðarvindur sem hallaði örlítið á annað markið. Fyrri hálfleikur var í rólegri kanntinum og lítið að gerast á vellinum. Reynismenn áttu skalla í slá og má segja að það hafi verið það eina markverða sem gerðist í hálfleiknum. Sanngjörn 0-0 [...]

4. flokkur kvenna á enn möguleika á að komast í úrslit

21.08 , 2010 | robbi

4. flokkur kvenna spilaði við Tindastól á Sauðárkróki s.l. fimmtudag. Í liðið vantaði marga lykilmenn, en samt sem áður stóðu stúlkurnar sig frábærlega og náðu jafntefli 1-1. Með jafnteflinu þá á liðið enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Liðið þarf að vinna Völsung á heimavelli n.k. fimmtudag. Mark KS/Leifturs í leiknum skoraði Sylvía.

3.flokkur karla með annan fótinn í úrslit

19.08 , 2010 | robbi

3. flokkur karla vann góðan sigur á Völsung í gær (miðvikudag).  Lokatölur leiksins urðu 2-0. Liðið er nú efst í sínum riðli með 22 stig og næstu lið eru með 16 stig. Hólmar skoraði bæði mörk liðsins. Þar með er liðið nánast komið í úrslitakepnnina sem fer fram í byrjun september.

Nokkrir flokkar á leið í úrslit?

17.08 , 2010 | robbi

Elstu flokkar félagsins eru í eldlínunni í dag og næstu daga….. Í dag (þriðjudag) spilar 3. flokkur kvenna við Hvöt á Blönduósi, þetta er úrslitaleikur um hvort liðið fer í úrslitakeppnina. Á morgun spilar 3. flokkur karla við Völsung á Siglufjarðarvelli og með sigri mun 3. flokkurinn gulltryggja sig í úrslit. Á fimmtudaginn fer 4. flokkur [...]

Rýr uppskera hjá m.fl. karla í undanförnum leikjum

17.08 , 2010 | robbi

Meistaraflokkur karla hefur einungis nælt sér í 2 stig í síðustu fjórum leikjum. Liðið hefur gert jafntefli við KV og Aftureldingu. Leikirnir við BÍ/Bolungarvík og Völsung hafa tapast með minnsta mun.  Í öllum þessum leikjum hefur liðið verið að spila ágætis fótbolta en gengið illa að nýta færin. Svo hefur liðinu verið refsað grimmilega fyrir [...]