Sigur gegn Víði


16.07 2010 | Fréttir

Meistaraflokkur karla náðu í þrjú dýrmæt stig í dag (laugardag) gegn Víði. Lokatölur 2-0, sömu lokatölur og urði í fyrsta leiknum í vor gegn Víði. Gabríel skoraði sitt þriðja mark í tveim leikjum með skalla eftir aukaspyrnu frá Eiríki í fyrri hálfleik.  Hörður Már skoraði seinna markið á lokamínútu leiksins eftir að hafa sloppið í gegnum vörn gestanna.  Eftir góðan leik gegn Hetti s.l. miðvikudag þá áttu heimamenn ekki sinn besta leik, en gerðu nóg til að næla sér í öll þrjú stigin sem voru í boði. Nú er liðið komið með 20 stig og heldur fimmta sætinu í deildinni. Næsti leikur er laugardaginn 24. júlí á Ólafsvík gegn toppliði deildarinnar og sá leikur mun eflaust segja til um það hvort að liðið ætli að blanda sér af alvöru í toppbaráttuna.

Lið KS/Leiftur:

Nezir

Halldór-Kristjá-Heiðar-Eiríkur

Doddi-Aggi-Bjössi-Ingimar-Milan

Gabríel

Inná komu: Hörður-Þorri og Biggi Sæm

Ónotaðir varamenn: Aron Ingi og Andri Freyr

Áfram KS/Leiftur

Hvað finnst þér ?